imagesCAZWEIK0

Um Ólympíuvikuna

Alþjóðlegi ólympíudagurinn
Á hverju ári er haldið upp á Alþjóðlega ólympíudaginn út um allan heim, hér á landi hefur þessi dagur verið haldin hátíðlegur undanfarin ár en í tilefni af 100 ára afmæli ÍSÍ og að á þessu ári eru Ólympíuleikar í London var ákveðið að halda ólympíuviku frá 16.júní til 22.júní. Í ólympíuviku er hægt að fá kynningu á íþróttagreinum, fara og kynna sér íþróttagreinar og prófa og mögulega að hitta íþróttafólkið okkar og hetjurnar.

Markmiðið er að ná til sem flestra krakka á aldrinum sex ára til u.þ.b. 12 ára,  ekki síst til þeirra sem ekki stunda íþróttir. Ólympíuvikan er vettvangur til þess að veita krökkum út um allt land tækifæri að kynnast ólympísku gildunum og að prófa ólíkar íþróttagreinar. Þegar ólympíuvikan fer fram er um mánuður í sjálfa Ólympíuleikana og því tilvalin tímasetning að „hita upp“ fyrir leikana.

Við vonum að sem flestir verði með okkur í að gera þessa viku sem skemmtilegasta hvort sem um er að ræða  íþróttafélögin, frístundaheimili eða aðra sem halda námskeið í þessari viku.  Ekki er nauðsynlegt að vera með dagskrá alla vikuna til að vera með og hver og einn getur valið það sem þykir spennandi og áhugavert.  Það er ljóst að við getum ekki sent ólympíufara okkar á alla staði þar sem þeir eru margir.

Ólympíudagurinn sjálfur eða 23.júní var Alþjóðaólympíunefndin stofnuð árið 1894.

By hjordisgud

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s