Í ólympíuvikunni ætlar Sundsamband Íslands að bjóða upp á Sunddaga SSÍ. Það virkar þannig að allir sem synda í þessari viku geta skráð vegalengdina sem þeir synda í afgreiðslu allra sundstaða á Íslandi. Synt til London er yfirskriftin því til London þar sem Ólympíuleikarnir verða haldnir í sumar eru 1205 sjómílur eða 2.231.660 metrar. Markmiðið er að Íslendingar syndi þessa vegalend saman og styðji um leið íslenska sundliðið á leiðinni til London.
Sem sé, þú syndir og skráir vegalengdina í afgreiðslu laugarinnar ásamt nafni og kennitölu. Glaðningur frá SSÍ og Speedo fyrir þá sem synda oftast eða lengst. Sunddagar SSI