Alþjóðlegi Ólympíudagurinn er haldinn hátíðlegur um allan heim 23. júní, ár hvert. Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands tók þetta verkefni aðeins lengra í ár og skipulagði í samstarfi við sambands- og samstarfsaðila sína heila viku af íþróttatengdum viðburðum, Ólympíuviku ÍSÍ. Meðal þess sem í boði var í Ólympíuvikunni var strandblak, skylmingar, bogfimi, frjálsar íþróttir, keila, Knattþrautir KSÍ, Sunddagar SSÍ, Golfdagur GSÍ og margt fleira.
Mörg Frístundaheimili og íþróttafélög tóku virkan þátt og voru með ólympíuþema í sínu starfi alla vikuna, litlu ólympíuleikarnir voru m.a. haldnir á tveimur stöðum í dag þar sem krakkar prófuðu pokahlaup, minigolf, hóplangstökk og margt annað. Í vikunni heimsóttu ólympíufarar okkar og afreksíþróttafólk fjölmarga staði við góðan orðstýr. Spurningarnar í þessari viku til afreksíþróttafólks okkar hafa verið margar og skemmtilegar. Eiginhandaráritanir hafa verið skrifaðar og myndir teknar.
Við þökkum öllum sem tóku þátt í vikunni með okkur og bendum á að þrátt fyrir að þessari viku sé lokið þá er alltaf hægt að hreyfa sig og hafa gaman saman, hér á heimasíðunni er hægt að nálgast ýmsar þrautir og fróðleik um Ólympíuleikana.
Ólympíuvika ÍSÍ var sannarlega vettvangur til þess að veita krökkum tækifæri að kynnast ólympísku gildunum og kynnast ólympíuförum okkar.