Ásgeir Sigurgeirsson skammbyssuskytta er á leiðinni á Ólympíuleikana í London. Alþjóða Skotíþróttasambandið tilkynnti þetta í dag. Ásgeir fer inn á leikana þar sem Skotíþróttasambandi Íslands er úthlutað kvótaplássi á leikana í Frjálsri skammbyssu karla. En þar sem Ásgeir hefur líka náð ólympíulágmarki í Loftskammbyssu mun hann einnig taka þátt í þeirri grein. Þetta er í fyrsta skipti sem íslenskur skotmaður tekur þátt í skammbyssugreinum á Ólympíuleikum.
jún
27
2012