Ólympíufjölskylda ÍSÍ samanstendur af öflugum fyrirtækjum sem styðja við bakið á íslensku íþróttalífi. Þessi fyrirtæki eru aðal samstarfsaðilar Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands og koma að fjölmörgum verkefnum sem árlega fara fram á vegum ÍSÍ og tengjast jafnt afreksíþróttum sem almenningsíþróttum fyrir íþróttafólk á öllum aldri. Markmið þessa samstarfs er að efla enn frekar árangur íslenskt íþróttastarfs og vinna þannig að öflugu íþrótta- og félagslífi stærstu fjöldahreyfingar á Íslandi.

